Þjónusta / Tengdó

Rétta lausnin
fyrir þinn rekstur

Vefur, kerfi, efni og gervigreind geta unnið saman. Við hönnum heildina með markmiðið þitt í fyrirrúmi.

Það sem við gerum

Frá hugmynd
að fullbúinni lausn

01 / VEFHÖNNUN

Vefsíður sem selja

Við byggjum vefi með skýrum skilaboðum, sterkri hönnun og auðveldri leið fyrir gesti að hafa samband eða kaupa.

  • Fyrirtækjavefir og kynningarvefir
  • Vefverslanir og vörusíður
  • Farsímavæn hönnun og auðveld efnisumsjón
  • Hraður vefur sem heldur athygli gesta
  • Skýr leið að kaupum, bókun eða fyrirspurn
  • Gott aðgengi og sýnileiki í leitarvélum
02 / SÉRSMÍÐI

Kerfi sem leysa vandamál

Við smíðum öpp og forrit í Laravel og React, ásamt sérsmíðuðum viðbótum fyrir WordPress. Þegar tilbúin kerfi passa illa við vinnuna, mótum við lausn utan um þinn verkferil.

  • Bókanir, pantanir og eyðublöð
  • Verkbókhald, dagskrár og stöður mála
  • Tengingar milli vefs og innri vinnu
  • Öpp og forrit þróuð í Laravel og React
  • Sérsmíðaðar viðbætur fyrir WordPress
03 / EFNI OG HÖNNUN

Allt efnið á einum stað

Góð hugmynd þarf sterka framsetningu. Við aðstoðum við efni, útlit og tæknilegan frágang.

  • Textagerð og myndvinnsla
  • Myndbönd og grafísk hönnun
  • Lén, hýsing og birting
04 / GERVIGREIND

Gervigreind með tilgang

Við notum gervigreind þar sem hún getur stytt leiðina frá hugmynd að niðurstöðu og bætt þjónustu.

  • Hugmyndir, textar, myndir og myndbönd
  • Sjálfvirkni í upplýsingaflæði og daglegum verkefnum
  • Snjöll virkni inni á vefjum og í sérkerfum
Sérlausnir í notkun

Kerfi með
raunverulegan tilgang

Hér eru ólíkar lausnir sem sýna hvernig góð hönnun og skýr virkni vinna saman. Skoðaðu vefina og ræðum svo hvað þinn rekstur þarf.

Costbase verkefnastjórnunarkerfi á vefnum
VERKEFNASTJÓRNUN · IÐNAÐUR

Costbase

Tímar, efniskostnaður, kvittanir og reikningar í einu kerfi. Betri yfirsýn yfir hvert verkefni og minni handavinna við uppgjör.

Skoða Costbase ↗
Funeralis verkbókhald fyrir útfararþjónustur
VERKBÓKHALD · ÚTFARARÞJÓNUSTA

Funeralis

Viðtöl, dagskrá, útfarir og kostnaður á einum stað. Sérhæfð lausn sem heldur utan um upplýsingarnar og verkefnin sem skipta máli.

Skoða Funeralis ↗
PLATMÚSIK tónlistarvefur með flokkum og spilara
TÓNLIST · GERVIGREIND

PLATMÚSIK

Tónlistarvefur sem sameinar lög, texta, flokka og spilara í einni upplifun. Dæmi um skapandi efni og nýja möguleika með gervigreind.

Skoða PLATMÚSIK ↗
Entre bókunarkerfi með tímatöflu og bókun á síma
BÓKANIR · ÞJÓNUSTA

Entre

Bókunarkerfi á íslensku fyrir staka tíma, tímakort og áskriftir. Tímatafla, mæting og skilaboð til viðskiptavina á einum stað.

Skoða Entre ↗
Sniðin að þér

Þú þarft ekki að laga reksturinn að kerfinu. Lausnin á að passa við hvernig þú vinnur.

Ræðum þína hugmynd ↗